Bókhaldið í lagi í hverjum mánuði

Persónuleg og 100% rafræn bókhaldsþjónusta fyrir fyrirtæki. Sami aðilinn sér um bókhald, VSK, laun og ársreikninga í Payday, á föstu mánaðarverði.

Það sem við sjáum um

Þú sinnir rekstrinum. Við sjáum til þess að tölurnar séu réttar og skilin á réttum tíma.

Bókhald
Skráning tekna og gjalda, afstemming bankareikninga og utanumhald um fylgiskjöl, allt í Payday.
VSK-uppgjör
Við reiknum virðisaukaskattinn og skilum skýrslunni til skattsins innan frests.
Laun
Launavinnsla, launaseðlar og skilagreinar fyrir starfsmenn þína.
Ársreikningar og skattframtal
Rekstrar- og efnahagsreikningur ásamt skilum til Ríkisskattstjóra.

Pakkar á föstu verði

Veldu pakkann sem passar við stærð fyrirtækisins. Verð eru á mánuði.

Upphaf

Fyrir fyrirtæki sem eru að hefja rekstur. Gildir fyrsta rekstrarárið

44.990 kr. á mánuði

án 24% VSK

  • Gildir fyrsta rekstrarárið
  • Allt að 20 færslur á mánuði
  • Skráning tekna og gjalda
  • Afstemming bankareiknings
  • VSK-uppgjör og skil (ef við á)
  • Uppsetning í Payday
  • Engin launavinnsla
  • Skattframtal (viðbót)
Velja Upphaf

Grunnur

Fyrir lítil félög og ný fyrirtæki

89.990 kr. á mánuði

án 24% VSK

  • Allt að 60 færslur á mánuði
  • Skráning tekna og gjalda
  • Afstemming bankareikninga
  • VSK-uppgjör og skil
  • Uppsetning í Payday
  • Launavinnsla fyrir 1 starfsmann
  • Ársreikningur (viðbót)
Velja Grunn
Vinsælast

Vöxtur

Fyrir fyrirtæki með starfsmenn

179.990 kr. á mánuði

án 24% VSK

  • Allt að 90 færslur á mánuði
  • Allt sem er í Grunni
  • Launavinnsla fyrir allt að 5 starfsmenn
  • Mánaðarlegt rekstraryfirlit
  • Ársreikningur (viðbót)
Velja Vöxt

Fullur

Fyrir rótgróin fyrirtæki

289.990 kr. á mánuði

án 24% VSK

  • Allt að 150 færslur á mánuði
  • Allt sem er í Vexti
  • Launavinnsla fyrir allt að 15 starfsmenn
  • Rekstraryfirlit með skýringum
  • Mánaðarlegur fundur
  • Ársreikningur og skattframtal innifalið
Velja Fullan

Stærri fyrirtæki eða sérstakar þarfir?

Ef fyrirtækið fellur ekki undir neinn pakkanna, til dæmis vegna fjölda færslna eða starfsmanna eða flókins rekstrar, útbúum við tilboð eftir kynningarfund.

Óska eftir tilboði

Viðbætur

Skattframtal (Upphaf)99.990 kr.
Ársreikningur og skattframtal (Grunnur og Vöxtur)199.990 kr.
Launavinnsla: fyrsti starfsmaður7.990 kr. á mánuði
Launavinnsla: hver viðbótarstarfsmaður3.990 kr. á mánuði
Aukafærslur umfram innifalið140 kr. hver
Ráðgjöf og önnur vinna19.990 kr. á klst.

Öll verð eru án 24% VSK. Áskrift að Payday er ekki innifalin í verði.

Svona vinnum við

  1. Kynning

    Við förum yfir reksturinn og veljum pakka sem passar.

  2. Uppsetning

    Við setjum bókhaldið upp í Payday og tengjum bankann.

  3. Mánaðarleg vinna

    Þú sendir gögnin, við sjáum um skráningu, VSK og laun.

  4. Ársuppgjör

    Við gerum ársreikninginn og skilum honum til skattsins.

Einn aðili sem þekkir þinn rekstur

Valgeir Daðason rekur Kjöl Bókhald. Hann varð viðurkenndur bókari árið 2024 og vinnur með þér að rekstrinum: þú sérð um reksturinn og Valgeir sér um bókhaldið.

Þú ert alltaf í sambandi við sama bókarann, sem þekkir fyrirtækið þitt og svarar þér sjálfur.

Algengar spurningar

Þarf ég að vera með Payday?

Já, bókhaldið er fært í Payday. Þú ert með áskrift á þínu nafni og við setjum kerfið upp saman. Áskriftin er ekki innifalin í verði pakkanna.

Hvað gerist ef færslurnar fara yfir mörkin?

Aukafærslur kosta 140 kr. hver. Ef fyrirtækið er stöðugt yfir mörkunum bendum við á næsta pakka.

Hvað gerist eftir fyrsta rekstrarárið?

Upphaf gildir þá ár sem fyrirtækið hefur rekstur. Eftir það færist þú í pakka sem hentar umfangi rekstrarins, til dæmis Grunn.

Þarf ég að hitta þig?

Nei. Þjónustan er 100% rafræn. Gögn, samskipti og fundir fara fram rafrænt, og fundir eru haldnir á Google Meet.

Hvernig skila ég gögnum?

Þú sendir kvittanir og reikninga rafrænt. Við förum yfir hentugasta fyrirkomulagið í upphafi.

Get ég fengið bókhald fyrir fyrri tímabil?

Já, vinna við eldra bókhald er unnin á tímagjaldi, 19.990 kr. á klst. án VSK.

Fáðu tilboð fyrir þitt fyrirtæki

Veldu tíma sem hentar hér fyrir neðan og við förum yfir reksturinn saman á Google Meet. Þú getur líka sent okkur tölvupóst með stuttri lýsingu á rekstrinum.

Opna bókun í nýjum flipaSenda tölvupóst
kjolurbokhald@kjolurbokhald.is

Byrjaðu í viðskiptum

Veldu pakka og fylltu út upplýsingar um reksturinn. Við förum yfir þær og höfum samband til að ganga frá samningi og uppsetningu í Payday.

Með því að senda formið samþykkir þú skilmála og persónuverndarstefnu.

← Back

Your message has been sent

Óska eftir tilboði

Fylltu út upplýsingar um reksturinn. Við höfum samband til að bóka kynningarfund um bókhaldið, og sendum þér tilboð eftir hann.

Með því að senda formið samþykkir þú skilmála og persónuverndarstefnu.

← Back

Your message has been sent

Hvaða þjónustu vantar?